Lost in love?

Það hafa verið margir orðrómar undanfarna daga um það að lost stjörnurnar Evangeline Lilly og Dominic Monaghan eru að fara að giftast, sem að eru þó betur þekktar sem Charlie og Kate! Ekki er vitað um hvort að þessi orðrómur er sannur, en google skilar mörgum niðurstöðum - frá mörgum þekktum síðum.

Það er ekki hægt að draga í efa að þau séu par a.m.k. - sérstaklega ef að maður sér þessar myndir af þeim, saman. Click here! Er ekki Charlie bara heppnasti aulinn í heiminum? =]



Launahækkun!

Í öðrum fréttum þá hafa allir leikararnir fengið stöðuhækkun - það sem þau eiga skilið!! Með því að skrifa undir samning fyrir eitt ár í viðbót. Þeir sem að skrifuðu undir voru allir af original-survivors, nema Claire - við vitum ekki fyrir víst hvað það þýðir. Því miður.


212
Í nýjasta þættinum, 212 … Æjá ég vissi að ég gleymdi einhverju..

**SPOILERS ÚR 212 (CHARLIE ÞÆTTINUM)** Þó að ég hefði líklegast sætt mig við að sjá svona lítið brot úr honum..


(Highlightið til að sjá, bara til öryggis fyrir hina)
Glöggir áhorfendur hafa tekið eftir því að í svona 10 sekúntubrot sást flugvélin brotlenda í þessari bullu-vitleysu sem Charlie sást í, þið getið séð það hér ef þið horfið lengst til vinstri..




Í öðrum fréttum

Nektaratriði?

Í fyrsta þættinum (101, Pilot) var búið að skrifa nektar-atriði fyrir hana Kate, ekki var búið að ráða leikarann samt. Snemma í þessum mánuði viðurkenndi hún það og sagðist að hún hefði kviðið svo mikið fyrir þessu að það væri óeðlilegt.

Hún segir; “Þegar ég sá fyrsta handritið af 101 var þar nektar-atriði þar. Svo áður en ég fékk starfið sagði ég við JJ (höfundur ‘Lost’ JJ Abrams), ‘Þú ættir að vita að ég er svolítið smeyk og nekt er ekki eitthvað sem að ég mun verða jákvæð fyrir.”

“Þegar við komum að tökustaðnum var búið að breyta handritinu í það að ég væri í ”tank-top“ og nærbuxum og ég er mjög þakklát fyrir það að þeir breyttu því.”

Jaá hvað hefði gerst? Eins og Michael með Sun? Labbaði inn á hana nakna eða bara ekki neitt? Mwahaha, I guess we’ll never know..



Kv, Song