Þá er serían loksins byrjuð í Bandaríkjunum!
Þátturinn fannst mér bara nokkuð góður, kynntumst mörgu nýju fólki o.s.frv.
En varðandi það að Kaito (og hugsanlega Angela) voru drepin, skoðið Þetta .
Já, svo er Peter búinn að missa minnið og kanski jafnvel kraftana sína, samt notar hann einhvern kraft á Írana. En takið eftir að hálsmenið sem Peter er með er það sama og The Haitian er með!