Það er miður að sjá aftur og aftur tilgangslaust rugl á korkum, þangað koma þræðir sem hafa ekkert innihald, engan húmor, og eru bara fyrir. Þetta viljum við ekki, svo, hættið þessu, eyða takkinn verður óspart notaður. Einnig ætla ég að nota eyða takkann meira á kannanir, bara góð könnun kemst inn, sem er vel stafsett, spyr um eitthvað áhugavert/skemmtilegt, og er ekki með þessum leiðindabullmöguleikum eins og: “híhí, ég er api :Þ:Þ:: ´´^^^^^” type of thing. Sumar kannanir hérna, maður veltir stundum fyrir sér á hverju maður hafi verið þegar maður samþykkti þær…

Lítum aðeins á textann um sorpið, sem er hérna efst á forsíðu áhugamálsins:
THE ULTIMATE PLACE

Here is da SORP you know :)


Þeir sem telja sig geta verið án skítkasts í smástund, verið hér á sorpinu! The happy hippie place! Þar sem allir sorpast í friði! Þar sem engar stigahórur komast upp með neitt! Þar sem engin rifrildi eru! Þar sem allt er gott! (vonum við, annars verðum við örugglega lögsótt vegna falskra auglýsinga)
Lesið þetta, og einnig þetta:
Sorp
er áhugamál þar sem þið getið gleymt áhyggjum ykkar og talað um daginn og veginn við ýmsa fína ‘sorpara’, sem stunda þetta áhugamál af krafti. Vertu velkomin/n!


MUNIÐ:

að þegar þið sendið inn tengla að vísa beint í efnið (mynd, grein o.s.frv.) og látið góða lýsingu fylgja með.
að copy/paste er sem fyrr bannað, nema það sé fyndið :)
að þegar greinar eru þýddar að geta heimilda,
ef að grein er innihaldslaus og misheppnaður brandari að þá fer hún í Ruslafötuna!
að stigahórun er ekki liðin
að sögur fara á sögukubbinn og greinar á greinakubbinn!
að það er BANNAÐ að vera með leiðindi hérna! Algjörlega bannað! Þeir sem eru með móral fá aðvörun og við ítrekuð afbrot, bann!

Lesið þetta, og farið eftir þessu! Sjálfum finnst mér ekkert gaman að þurfa að eyða efni út, en ég bara verð að eyða því út sem brýtur í bága við reglurnar! ENGA neikvæðni! EKKERT tilgangslaust ófyndið rugl! HÆTTIÐ að senda inn bullkannanir! Gerum þetta áhugamál að því sem það var, og ætti alltaf að vera!

Ég vona að þið hafið náð þessu… Eða, er það ekki? Allaveganna, ég mun hiklaust eyða út því sem ekki á heima hérna, einfalt.

Kv. Vansi,
sem er kominn með músartakkann á eyðatazkkann á lélegu efni, og elskar að herma eftir ákveðnum admin ^^