Jæja, nú er komið að því! Yfirgnæfandi meirihluti sorpara vildi nýjan banner hingað skv. nýlegri könnun, þá hrindi ég nú af stað bannerakeppni! Núna er um að gera að dusta rykið af myndvinnsluforritunum ykkar, og byrja að gera bannera, ekki satt?

Reglurnar fyrir keppnina eru fáar, en þær eru eftirfarandi:
*Bannerinn á að vera 245*54 pixlar
*Hann skal vera á forminu .gif
*Bannerinn sem verður sendur inn er bara sá hluti myndarinnar sem Bush og félagi er á, bláa svæðið við hliðina og undir myndinni er ekki hluti af bannernum sem er sendur inn
*Bannerinn verður að vera fyndinn, eða hafa a.m.k. einhvern húmor

Bannerarnir skulu vera sendir á vansilius@gmail.com, og huganafn skal taka fram í póstinum, fyrir 18. maí næstkomandi.
Þá mun koma könnun, sem sker úr hvaða banner skal notaður. Skilið?

(þeir sem ekki vita hvað banner er, þá er það myndin af Bush með kíkinn í efra hægra horninu)

Gangi ykkur vel!