*gamaldags auglýsingaþulur les*
Eruð þið orðin leið á að búa í snjóhúsum með mörgæsir og ísbirni í garðinum ykkar ?

Eruð þið orðin leið á að það er alltaf kalt þótt það sé enginn snjór úti ?

Eruð þið orðin leið á að þurfa að borga mikinn pening til að komast til útlanda ?

Gangið þá til liðs við mig, vansa og Nesa13.

Við ætlum að leiga okkur 15 kafara og gefa þeim sög og svo ætla ég að láta þá saga botninn af Íslandi svo við geti siglt siglt suður og lagt við hliðina á Portúgal og festa það svo þar.

Þátttökugjaldið verður frá 300 krónum upp í 500 krónur, allt eftir því hversu mikið við tímum að borga fyrir hverja sög.
En framkvæmdir myndu ekki hefjast fyrr en eftir jól því að kafararnir geta frosið og við myndum þá líka hafa snjólaus jól ef við færum mikið fyrr.

Er einhver með í þessu ?