Greetings, kæru Sorparar. Það er ChocoboFan hinn mikli sem heilsar ykkur nú, aðeins og seinn með fréttirnar eins og venjulega og ÞETTA … er helst í fréttum! :O

****************************
TVÆR nýjar greinar!
8000 korkurinn
Muppets Fígúrur
Hvar er SinSin ..?
Páskar n’such!
Drengur Lokast inní ísskáp, borðar sinn eigin fót!
Pési fær bílpróf … aftur.
Awesome viðtal við LindeLou :O
****************************


TVÆR nýjar greinar!

Já, gott fólk þið heyrðuð rétt …. nei, bíddu. Þið LÁSUÐ rétt. Nema þið hafið lesið þetta vitlaust að minnsta kosti, en þá ættuð þið líka að lesa þetta aftur.
Allavega, það hafa tvær nýjar greinar komið frá síðustu fréttum. Það eru greinarnar, Blaise Pascal, 19.Júní 1623 – 19.Ágúst 1662 eftir Devo, og Sorpara Sögur: Episode II To be or not to be … A Sorpari! Eftir hinn mikla og máttuga … mig! Allir að lesa þessar greinar annars tortími ég ykkur og það viljið þið ekki.

8000 korkurinn

Stórfenglegt og undravert! Áttaþúsund (+) korkar á sorpinu! Það var ofurmennið mikla Tandri sem gerði kork númer 8000 og feisaði alla big time! Það er ekki á hverjum degi sem svona merkishlutir gerast skal ég segja ykkur. Tandri segist ætla að fara á snemm eftirlaun og ætlar að fara með fjölskyldunni í vikulanga ferð til Úsbekistan.

Muppets Fígúrur

DrHaHa gerði á dögunum stórskemmtilegan kork um Muppets fígúrur sem er vel þess virði að segja frá hér. Hann sagði að bróðir sinn hefði átt svoleiðis hluti og á hans yngri árum fór hann með þær upp í sveit og byrjaði að kasta þeim upp í loftið. Ekki leið á löngu áður en hann týndi einni fígúrunni hann beygði sig niður til að ná í hana en hún var á dularfullan hátt … HORFIN! :O
Og enn þann dag í dag hefur þessi fígúra, nánar tiltekið, Kokkurinn úr Muppets, ekki fundist. Ég tel að sjö og hálf mínútna löng þögn sé nú við hæfi. *sjö og hálf mínútna löng þögn*

Hvar er SinSin ..?

Fólk hefur verið að spyrja, hvar er okkar átkæri Sindri F. A.K.A SinSin undanfarna daga (?) og Rakvelarblad gerðist jafnvel svo djarfur að gera kork um þetta mál. Svo virðist sem hann Sindri hafi ekki komið inná Huga síðan 11. Mars og Zimpo beibí segir að hann sé hættur. Við söknum hans öll …. okei flest! En það er þó alltaf hægt að finna hann á msn. Það er þó gott … =D

Páskar n’such!

Páskar voru á sunnudag, YAY! Ég fékk páskaegg. Þið líka líklega! Allir eru glaðir og ættu að syngja. Ég veit þetta tengist ekki sorpinu mikið en ef þið eruð eitthvað ósátt þá bara, screw you!

Drengur Lokast inní ísskáp, borðar sinn eigin fót!

Nuff said …

Pési fær bílpróf … aftur.

Þann 6. Apríl síðastliðin gerðist sá merkishlutur að Pési okkar Jónsson (gisk) fékk bílpróf AFTUR! =D
Sykurpúðinn skráði þetta sem atburð í atburðarkubbinn (?) og hvorki meira né minna en 64 ætluðu … frekar mikið, eh?
Það virðist alltaf vera að minnsta kosti ein frétt um hann Pésa hjá mér, tilviljun? Ég held … EKKI!
… jú samt.

Awesome viðtal við LindeLou :O

Já,já. Nú skiptum við yfir til Dr.HaHa sem er staddur á heimili LindeLou og ætlar að taka awesome viðtal við hana. DrHaHa?

HaHa: Jó, takk fyrir Choco minn góði. Eins og hann sagði er ég staddur hér með LindeLou sem hefur verið svo góð að leyfa mér að taka viðtal við hana. Hvað segir þú í dag, beibí?
LL: Ég segi bara allt fínt þakka þér fyrir að spyrja!
HaHa: Hvað er að frétta af Lindsay Lohan *flissar*
LL: *horfir illilega á HaHa*
HaHa: Jæja … eh. Hver er skoðun þín á heimspekilegum málefnum líðandi stundar og útkomu þjóðfélagsins þegar á heildina er litið?
LL: … ha? Ég skil ekki spurninguna.
HaHa: Okei. *hóst Lindsay Lohan lover hóst* *flissar rosalega*
LL: Fyrirgefðu, hvað sagðir þú?
HaHa: Ég sagði ekkert. Af hverju trítlar þú nú ekki bara yfir til hinna félagana í Lindsay Lohan aðdáendaklúbbnum. *fliss*
LL: Heyrðu mig nú, ef ég heyri eitt orð enn um Linday Lohan þá ertu í vondum málum. Ef þú hefur engar alvöru spurningar til að spyrja mig þá er ég farinn.
HaHa: Lindsay Lohan lover, Lindsay Lohan lover, Lindsay Lohan lover! Híhíhíhí!
*LindeLou tekur upp hafnarboltakylfu og byrjar að berja HaHa*
HaHa: Nei, ái, hættu, ahh! Neiii! Æj ekki þarna, ekki lemja mig þarna. Úh, áts! Æjjj!

Choco: Heheh, alltaf að fíflast hann DrHaHa. En með þessu líkur fréttunum í dag og við sjáumst. Þar til við hittumst næst!
Bæjó!

FIN
I'm a winner, I'm a sinner. Do you want my autograph?