Lucifer & Dorotheus Eftir að supernanny tilkynnti mér að dockinn hans Tómasar hefði verið tekinn úr sambandi, þá byrjaði mig að langa í dock fyrir Lucifer (iPod nano-inn minn fyrir þá sem ekki vita). Fór inn á apple.com og þannig, sé þessa hvítu, en ég myndi aldrei nenna að kaupa á netinu, og nenni ekki heldur niður í Brautarholt að kaupa mér þannig.

Svo fólr ég á www.apple.com/umraedur (applestuð á mér í dag ^^), og sé þennan fína þráð um docka: http://beta.apple.is/index.php?option=com_forum&Itemid=26&page=viewtopic&t=5680 . Jæja, stuttu seinna ákveð ég að prófa, þó að ég sé ekkert barn, og uppskar þetta fína bláa og svarta iPod nano hús með legohæfileikum mínum ^^ (sem eru btw. þónokkrir, hef m.a.s. verið fenginn til að sýna þá í sjónvarpi!)
Svo setti ég bara hleðslusnúruna sem fylgdi með Lucifer, og setti hana í gegnum rifu milli legoplatna.

Þessi er flottari en dockarnir sem maður kaupir, því þessi er með þaki! Sem hægt er að taka af ef maður vill ^^
Hver segir svo að iPod dockar þurfi að vera hvítir?…

(Þýðing: dock = tengikví, þar sem maður setur iPodinn í til að tengja hann við tölvu)