Árið er 2017, kjarnorkustríð fór í gang 2014 er Kína núkaði flest önnur ríki, og Bandaríkin svöruðu fyrir sig með að núka Kína, einu löndin eftir eru Írland, Ísland, Mongólía, Ástralía og Kórea. Írland og Ísland fóru í hernaðarbandalag og dældu inn hermönnum til Norður-Kóreu, en Mongólía og Ástralíu fóru í stríð fyrir Nýju-Gíneu… Út af einhverjari ástæðu. Þessi saga er rituð af óbreytnum hermanni sem gekk undir nafninu Mogwaii.

Ég leit á stóra manninn hliðin á mér, báturinn fór hratt að meginlandinu og sprengjur splundruðust í vatninu hliðin á mér. Ég hóstaði þegar úrgangurinn úr Ræsishafinu skaust upp í munnin á mér. “Jæja drengir, förum nú og drepum þessa fokking kínverja!” öskraði Kapteinn Snjói. “Errh.. Þetta eru kóreubúar.” sagði lítill, aumingjalegur maður. “Þegiðu, laaangbestastur,” sagði Snjói og skaut laaangbestast með hríðskotabyssunni sinni. “Þetta eru kínverjar, og ekki orð um það meir!” gargaði Snjói.

Báturinn lenti, THT liðþjálfi spratt áfram og dritaði niður fjóra kóreubúa og Gorky barði annan. Snjói hljóp í átt að hermannaskaranum og kastaði handsprengju inn í þvöguna. Ég leit til hægri og sá Laddis öskra á sjúkraþjálfa og hin röska n00ban hljóp í átt að honum og dró hann í skjól. Svo heyrði ég það, Major Lobsterman hljóp inn í baráttuna með höggsverð í hendi og Lily2, Hypnotoadinn, hemmsilius, VeritaeElectio og marga fleiri í eftirdragi. Ég sá SinSin hlaupa með stórann 5.5 Caliber riffil í hendi og var á leiðinni til hæðarinnar sem lobsterman, Snjói og Gorky stóðu og skutu niður endalaust af hermönnum, ég sá Snjóa klára byssuskotin sín, hann henti byssunni frá sér og barði hermannina til óbóta í staðinn. Ég skaust upp hæðina til að hjálpa þeim og skaut.