Jæja, villandi nafn…Þið hélduð kannski að þetta yrði áhugaverð umræða um stríðið sem hefur ríkt á milli skonsuunnenda og kleinuunnenda um árabil en því miður er svo ekki.

Mig langaði bara að nefna þennan kork svona! Spennandi ekki satt?

En það sem ég vildi sagt hafa var það að þó þið hafið kannski ekki tekið eftir því þá hef ég nánast ekkert verið á sorpinu í lengri tíma, bæði vegna tölvusjúks bróður og utanlandsferða.

Og þar sem ég sé ekki fram á að geta verið virk á sorpinu í lengri tíma enn, próf, tölvusjúkur bróðir og sumarið(maður á ekki að vera í tölvunni á sumrin) þá ákvað ég bara að hætta þessu alveg! :/ Allavega að taka mér pásu í langan tíma. :)

Þannig að mig langaði að kveðja sorpið almennilega og ljúka þessu af með svona “uppsagnarbréfi” ;)

Gangi ykkur vel að koma sorpinu í lag(eða er það kannski bara orðið fínt aftur? Shitt ég hef ekki komið leeengi) og halda því gangandi! :D

Góðar stundir…;)
Kv. Cho