Vegna uppkomandi samkundu sem á laugardaginn verður, langar nokkrar ungar stúlkur að forvitnast aðeins um það hvort þær eigi að mæta.

Sú sem bað mig um að gera þennan kork er engin önnur en… *trommtrommtromm* hinn frægi hugari, admin á /hp og /klassik, með bleika undirskrift og þýskt msn nafn, engin önnur en fantasia! Hún hefur verið að spá og spökulera, hvort hún ætti að mæta, eða bara hitta okkur “óvart” eins og í Regnboganum um daginn.
Ég vil endilega að hún mæti, og þá myndi olivejuice mæta með henni. Þó þið þekkið þær ekki beint sem sorpara, þá eru þær meiri sorparar en þær sýnast ^^
Hvað segjum við? Viljum við að hin dularfulla fantasia og miss so lace a.k.a. olivejuice mæti á laugardaginn? Ef þið viljið það, viljið þið þá verða vitni að ofsafenginni bræði fantasiu er hún gefur mér kinnhest? Plís segið nei…

Einnig er önnur ung telpa sem hefur áhuga á að mæta, málið er bara að hún er ekki sorpari. Ekki einu sinni hugari! Hún þekkir samt alveg nokkra hugara. Við erum að tala um enga aðra en ákveðna Írenu, mosóhatarann mikla, sem kemur frá vonn ó næn eins og ég.
Hana langar að mæta, en veit ekki hvort hún megi það. Ég spyr: Má fólk ekki alveg mæta þó það sé ekki með nick á huga? Mér finnst það. Auk þess þurfum við annan Breiðhylting, úr því okkar ástkæra OfurKind kemst ekki.

Svo, er ekki málið því fleiri því betra? Það þurfa ekkert allir að þekkja hvern einasta aðila sem mætir á samkunduna, er það nokkuð? Eigum við að hvetja þessar þrjár, fantasiu, olivejuice og Írena til að mæta? Já segi ég, hvað um þig?


Á öðrum nótum, hver hérna ætlar að mæta? Ef þú mætir ekki, komdu með ástæðu, góða ástæðu. Annars verður þú sótt(ur)…..

See ya all on saturday my co sorpers ;;D