Það á ekki að segja gleðileg jól strax, þau eru ekki komin, en aðfangadagur sure er kominn :}

Újehhhh, ég er í jólaskapi! Það var æðislegt að bera út, snjórinn, jólaljósin, jólalögin, nammi namm! Ég komst í svo mikið jólaskap áðan, vííí, jólin koma eftir 16 klukkutíma! Og þar af á ég eftir að sofa í nokkra, ekki mikil bið :}

Jæja, ég ætlaði apð vera svo sniðugur að senda þeim ykkar sem eru á msn-inu mínu jólakort í e-mail, en svo virkaði það bara ekki! Þannig að, hér er kveðjan:
Ég, Atli, vil óska þér og þínum gleðilegra jóla, og farsæls komandi árs. Þakka góðar stundir á liðnu ári, og vonast eftir fleirum þannig á næsta ári ^^
Take care :Ð

Vííí ^^