Fréttablaðið 15. apríl 00:30
Bush kominn með iPod
George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur eignast nýtt leikfang: stafræna vasadiskóið iPod. Þegar stund skapast á milli stríða notar Bush tækifærið og stundar líkamsrækt með dúndrandi dægurtónlist í eyrunum. Þetta virðist skila góðum árangri því að forsetinn hefur misst tæp fjögur kíló að undanförnu.

250 lög er að finna á lagalista Bush. Eins og búast má við er amerísk sveitatónlist þar í öndvegi en einnig má þar finna rokklög á borð við “My Sharona” með hljómsveitinni The Knack að ógleymdum gamla Van Morrison-slagaranum “Brown-Eyed Girl”, sem er eitt af eftirlætislögum Bush.



hvað er ekki sett í fréttirnar ég bara spyr??
ég meina hvað er svona merkilegt við það að Bush eigi Ipod. Mér finnst nú ekkert merkilegt við það, en kannski eru ekki allir á minni skoðun…