veistu hvað er auðvelt að eitra fyrir þér?

10/11 setur bara smá rottueitur (í rosa littlu magni) í glassúrið sem starfsmennirnir dæla svo á snúðana sem þið borðið með glöðu geði nýbakaða í hádeginu!

Að vífilfell gæti allt eins verið að setja blásýru útí fantað!!

Að þegar þú notar nokia símann þinn þá er verið að senda skilaboð í heilann þinn um að kaupa eitthvað meira svo að Finnland gæti endanlega náð heimsyfirvöldum!

Að ríkisstjórnin veit um alla sjúkdóma sem þú hefur látið heimilislækninn þinn vita af (eða bara besta vin þinn því að hann gæti verið útsendari!) , þau vita hvað mikið þú færð af launum á mánuði, þau vita hversu miklu þú eyðir í hvað þú eyðir því og geta mjög auðveldlega þurkað þig útúr þjóðlífinu!

Að fólkið í kringum þig gæti verið uppspuni frá rótum, vélmenni eða mynd varpað frá skjávarpa úr loftinu á hljóðverinu sem við óupplýsti hlutinn af þjóðinni viljum kalla “himin”!

Besta ráðið er að versla ekki við neinar búðir, stunda sjálfsþurftar búskap og ekki umgangast fólk sem þú þekkir ekki!

Ekki gefa fólki neinar upplýsingar um þig og ef fólk spyr þig hvað klukkan sé þá segistu ekki vita það því ef þú tekur upp síma þá veit viðkomndi að það er hægt að ná í þig hvar sem er, ef þú lítur á úrið þitt þá veit viðkomandi hvort þú sért örv- eða rétthentur og veit þá frá hvorri hliðinni er betra að ráðast á þig frá!

Helst er að búa á einhverri eyju útí rassgati sem enginn hefur enn heyrt um og ekki segja neinum að þú fluttir þangað ásamt maka þínum (reyndar er öruggara að ferðast einn því þú veist ekkert í rauninni um makann þinn) þó að Egypska þingið ætli að prófa kjarnorku vopnin sín á þessarri sömu eyju og létu þessi Sameinuðu Þjóðar samtök ekki vita!!

Í alvöru hvað veistu um makann þinn eða fjölskylduna þína?
Ekki það mikið, þau gætu verið að stjórna byltingu úr sínum læstu svefnherbergjum meðan þú ert frammi að borða eitraða sóma samloku, þú þykist vita hverju þau hafa áhuga á en það er mjög líklega allt lýgi, og eitt systkina þinna gæti verið illt klón sem er laumufarþegi frá layniþjónustu Ísafjarðarkaupstað (þeir eru búnir að koma einu klóni fyrir á hverju heimili Íslands til að geta komst að því hvernig er best að flytja ísland neðar á Atlantshafið svo Ísfirðingar geti synt til Flórída því þeir vilja endilega stofna sitt eigið sjálfstæða ríki)

Ekki treysta netinu heldur og alls ekki þessum rusl pósti sem er sendur þér á fjögurra mínútna fresti því það eru skósveinar kölska sjálfs!


Kannski ætti ég að enbeita mér að öðrum hlutum og reyna að falla undir það sem´“þér” finnst eðlilegt

hvað finnst þér eðlilegt?

Kv.Ég
Have a nice day