Fyrir ekki svo löngu síðan bjó ég til kork á sorpinu. Þar tuðaði ég um hvað mig kveið fyrir busuninni í skólanum mínum. Í dag var svo hin hræðilega busun. Og ég hef aldrei skemmt mér jafn vel:O

Ég var einkabusi. En ekki einkabusi hjá hræðilegu stelpunni sem ég þekki. Heldur hjá einhverjum strák. Hann lét mig fylla á vatnsblöðrur(sem ég bæ ðe vei fékk í fésið stuttu síðar) og svo skúra gólfið inná baði ásamt vinkonu minni. Svo þurftum við að þrífa eldhúsið líka. Við vorum voða góðir busar.

Svo kom að því að svarti listinn var lesin upp. Og ÉG var á honum. Ég fékk næstum flog, ég sem var svo góð:C Ég, ásamt óþekkum busum þurfti að labba inn í sal og þar var verið að vefja fólk í plast og teipa það. Úber gaman. Og það kom í ljós að ég var fyrir miskilning á svarta listanum. Eða sko stelpur í hinum bekknum voru óþekkar og sögðust heita Jóna, eða allavega ein þeirra og þær viðurkenndu það og ég slapp. En einn strákurinn þurfti að þrífa felgurnar á bíl með eyrnapinna. . .

Næst á dagskrá var að hópa öllum hinum busunum saman. Og þá kom í ljós að það er ekki gott að vera einkabusi. Ég og vinkona mín vorum teipaðar saman og það var vont og svo áttum við bara að labba. Það er erfitt að labba niður stiga teipaður við vinkonu sína. Og þegar niður kom þá fékk ég svona milljón vatnsblöðrur á mig og svo var skotið á mann úr vatnsbyssu og síðan átti maður bara að labba. Eitthvað í buskann rennblautur. Það er ekki sniðugt að detta teipaður við eitthvern.

Þetta er orðið langt hjá mér svo ég segi afganginn í stuttu máli: Við löbbuðum að eitthverju túni og áttum að gera leikfimisæfingar, kyssa skó og meira skemmtilegt. Og fengum meiri vatnsblöðrur á okkur. Þá komu nokkrir strákar sem sluppu við busun því þeir eru svo gamlir með fötu af vatnsblöðrum og byrjuðu að henda í fólkið sem var að busa. Það var gaman.

Þar fékk einn blóðnasir og það leið yfir eina stelpu. Það eyðilaggði gamanið og allir löbbuðu aftur í skólann og við fengum pulsu og gos. Þetta var voða kósý busun, ekkert alvarlegt.

Og haha svo var ein stelpa á eldra ári sem var að borða pulsu úti þegar some gaur hellir fötu af vatni yfir hana. Hún varð pínu reið:/

Endir?

P.S. þetta ætti kannski betur heima á /skoli en ég ég hef aldrei gert grein á sorpinu svooo ég ákvað að setja það hér inn;)