Veit einhver hvort það sé ennþá hægt að sækja um fjarnám í einhverjum skóla? Ég er á málabraut, en það verður ekki kennd ÞÝS503 í skólanum mínum á næstu önn, og ekki miklar líkur á að það gerist næstu vorönn.
Ég er svona aðeins að leita, sá að það var lokað hjá Versló, grunaði þá að kannski væru flestir skólar búnir að loka fyrir umsóknir….