Mig langar mikið til að vita hvort að einhverjir bíla/vélaþættir séu á leiðinni á einhverjar af Íslensku sjónvarpstöðvunnum?
Þá er ég ekki að tala um mótorsport eða Mótor á S1… Heldur erlenda þætti s.s. Top Gear(5th Gear), Monster Garage, American Chopper, Pimp My Ride, Scrapheap. Allir þessir þættir eru reyndar á Discovery nema Pimp My Ride. En mig langar mjög mikið að sjá einhverja góða bílaþætti ánþess að þurfa að kaupa mér gervihnattardisk sem kostar alveg slatta.. Ég veit að það er hægt að ná í flesta af þessum þáttum á netinu en það eru ekkert nógu góð gæði. Er einhver leið á að fá einhverja af þessum þáttum í Íslenskt sjónvarp þó það sé ekki nema nokkrar seríur.. Einu nýju þættirnir núna í sjónvarpi eru einhverjar sápuóperur mér finnst alveg vanta einhverja þætti fyrir þennan hóp áhorfenda(bíladellukalla/kvenna)
;)

Með Kveðju og afsökun á öllum stafsetningarvillum sem ég tek ekki eftir sjálfur :)