Hvernig á að láta simsann sinn verða frægan Hvernig á að láta simsann sinn verða frægan :

Hálf Starna :

Náðu þér í tvo creativity points, og farðu svo á tónlistarstað í studio town, og singdu Karaoke, það er auðvelt að fá hálfa stjörnu hér

1 Stjarna :

Áður en þú ferð í Studio Town, gáðu hvort þú þurfir að eignast fræga vini, eða fá einhver skill points. Farðu svo á einhvern fashion stað í studio town, og gerðu Model Print Ad. Þetta er líka frekar auðvelt, en þarf kannski að gera þetta nokkrum sinnum.

1 ½ Stjarna :

Eftir að vera komin með skills og vinina sem þarf til að ná þessu, getiru farið í eitthvað af sjónvarps stúdíóinum í Studio Town, og nú getiru tekið upp auglýsingu. (Act Commercial) Það þarf ábyggilega að gera þetta nokkrum sinnum, en þetta er ekki mjög erfitt.

2 Stjörnur :

Nú verður þetta aðeins erfiðara. Þegar þú ert búin að ná í skill points og vini sem þarf fyrir þetta ferðu aftur á fashion stað í Studio Town, or þú getur valið Model Swimwear eða Model Winterwear, skiptir ekki máli hvort. Nú gefur myndatökumanneskjan þér 3 valkosti, og þú hefur 3 tækifæri til að ná þessu.
Við skulum kalla valkostina 1 2 og 3. Fyrst veliru 1 1 og 1. Það sem honum líkar illa við (kemur X yfir hausinn það sem hann er að hugsa) skaltu breyta í 2. Ef það er eitthvað eftir sem honum líkar illa við skaltu skipta í 3. Þú getur alltaf fengið allt rétt í 3 tilraun. Ef þú ert heppin, og nærð því í 2 tilraun, og eftir nokkrar tilraunir færðu aðra stjörnu.

2 ½ Stjörnur :

Nú ertu að leika í sápu óperu :o) Þú getur valið um Act Inheritence Scene eða Act Emergency Scene, skiptir ekki máli hvort. Enn sem áður færðu 3 valkosti, og 3 tækifæri, þú gerir þetta eins og Model, og getur náð öllu réttu í 3 tilraun. Og ekki gleyma að vera viss um að þú ert með öll skill points og vini sem þú þarft áður en þú ferð í Studio Town.

3 Stjörnur :

Nú ferðu í tónlistarstúdíó, og tekur upp plötu. Þú getur valið um Dance Anthem, Rock Song og Pop Ballad held ég, bara allt nema jingle, þú ert búin að gera það. Aftur færðu 3 valkosti, og 3 tækifæri, og gerir þetta eins og hin tvö á undan, þetta er ekki mikið erfiðara en að leika í sápu óperu.

3 ½ Stjörnur :

Nú verður þetta frekar erfitt. Nú ferðu á fashion stað aftur, og nú ertu í tísku sýningu, og þú getur bara valið Model Clothes. Þú færð 3 valkosti, en bara 2 tækifæri. Eins og áður þá skaltu samt bara velja 1 1 og 1, og það sem hann líkar illa við getiru breytt í bæði 2 og 3, og vonað að þú verðir heppin. Að vísu þarf tískustjórinn bara að líka vel við 2 af þessum 3 valkostum, þannig eftir nokkar tilraunir ætti þetta líka að hafast.
Þú þarft að bíða eftir að annar simsi komi, og tekur þátt í sýningunni með þér, þannig ekki halda að það sé eitthvað að þó að simsinn þinn fari ekki uppá pallinn um leið og þú velur Model Clothes, bíddu bara í smá stund.
Hér fer að aukast kröfurnar á vinina og skill points, ekki gleyma að hafa þetta á hreinu áður en þú ferð í Studio Town.

4 Stjörnur :

Þetta fynnst mér mjög skemmtilegt, því nú áttu að taka upp tónlistarmyndband :D
Þú getur valið um Dans, Popp, eða Rokk lag, og eins og í tískusýningunni þá færðu bara 2 tækifæri, en 3 valkosti. Persónulega hefur gengið best hjá mér að taka upp poppmyndband, en það hlýtur bara að vera tilviljun, og þetta geriru bara eins og tískusýninguna.

4 ½ Stjörnur :

Og svo er þetta síðast, að leika í kvikmynd. Þú getur valið um að leika Fight Scene, eða Death Scene. Og aftur þarftu að bíða eftir að annar simsi komi til að leika á móti þér. Þú færð ennþá 3 valkosti og 2 tækifæri, þannig þetta er ekki mikið erfiðara en tónlistarmyndbandið.
Þegar þér tekst þetta ertu orðin SuperStar, til hamingju! :)

Smá Tip :

Það er rosalega gott að búa til fjölskyldu með 8 manneskjum, og gera þau smátt að smátt frægari, og láta simsann þinn vera vinur þeirra, svo að þú fáir fræga vini. Í Superstar er sko ekki lengur hvað þú átt marga vini, heldur hvað þú átt fræga vini.

Og enn og aftur, veriði viss um að vera með öll skill points sem þú þarft, og vera með nógu marga fræga vini áður en þú ferð í Studio Town, annars gengur ekki neitt.
Passiði líka að simsinn þinn sé í góðu skapi áður en hann fer í Studio Town að vinna, annars þegar hann er komin í vont skap þá gengur aldrei vel, og helst þarf að hafa energy fullt, eða hér um bil, áður en maður fer, því þetta tekur allt tíma í Studio Town.

Vonandi hefur þetta hjálpað einhverjum, og vinsamlegast athugið að þetta er bara byggt uppá minni reynslu í sims, ég hef náð að láta simsann minn verða superstar með því að gera þetta sem ég var að segja ykkur.

Simsa Kveðja,
Betababe.

P.S. Algjör áþarfi að koma með svör eins og “Sims er ömurlegur leikur” eða “þetta vita allir” Bara halda þessum skoðunum útaf fyrir ykkur, eða tjáið ykkur á vinsamlegan hátt, kurteisi drepur engan.
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…