Það er orðrómur um að tökur séu að hefjast á nýrri seríu af One Tree Hill. One Tree Hill: Jamaica. Peyton og Brooke hrekja Deb úr bænum, og hún hefur nýtt líf á Jamaicu. Karen heldur Dan á lífi, og Dan sleppur og neyðir Keith og Lucas í felur. Þeir ferðast um gjörvalla Evrópu, en Dan er ávallt einu skrefi á eftir. Þeir koma þó að lokum að Jamaicu, og slá sér upp með Deb.

Úr þessu verður svo hinn skemmtilegasti hómó-erótíski ástarþrýhyrningur sem litið hefur dagsins ljós í langan tíma. Einnig eru orðrómar í loftinu að margar gestastjörnur muni koma til sögu svo sem víðfrægi rapparinn P. Diddy, Gary Oldman(þekktur leikari fyrir fanginn frá Azkaban), Íslands vinurin Páll Rósinkranz og Lord Voldemort.

Þetta eru bara orðrómar og hefur ekki neitt þessu verið staðfest(nema að Lord Voldemort komi) þó hafi verið gefið í skyn. Þar sem ég sjálfur er einlægur aðdáandi að One Tree Hill vona ég að þetta verði allt satt og þau nái að flýja járnkló Dans.