Já, þátturinn endaði með mjög dramtískum hætti.. Annie henti sér niður stigann í partýinu hennar Amöndu! Ég vissi þetta reyndar svona nokkurnveginn, og ég vissi að þetta myndi gerast fljótlega… Ég bara er alveg hætt að geta vorkennt Annie því miður. Eftir allt sem hún hefur gert, gerir HVAÐ SEM ER til að hafa Josh. Skipta sér af einhverju sem kemur henni ekkert við í einkalífi Revu, ljúga að Revu að hún sé systir hennar, ljúga um faðerni og getnaðardag barnins, nota dauða barnsins síðan til að klekkja á Revu… og hvað og hvað..!

Auðvitað skil ég að hún vill hafa Josh og ég óskaði henni ekki að missa barnið, saklaust barn sem hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut. En þetta er bara orðin e-r þráhyggja hjá henni, bara eins og fíkn, eins og áfengi og pillur, nema núna er það Josh sem er fíknin!

Hún var e-ð búin að plana að nota partý Amöndu, en ekki nákvæmlega hvernig. Sko, auðvitað elskaði Annie barnið, þetta var líka ein af leiðunum til að halda í Josh en ekkert bara útaf því, en það er eins og hún hafi bara stundum gleymt því að hún væri ólétt, hún er búin að vera ein taugahrúga, sem er nú ekki gott þegar mðaur er óléttur. Þannig ég er ekkert hissa að barnið dó og þetta fór svona. En ég skil ekki hvernig hún getur bara verið þarna og látið eins og ekkert hafi gerst og veirð aðplana e-ð til að nota dauða barnsins gegn Revu. Hún vissi að hún væri búin að vera mjög reið við hana (sem er skiljanlegt) og lét hana síðan koma upp stigann í partýinu. Lét alla halda að þær væru að rífast, og já, passaði að allir væru uppteknir við Ross, og sagði e-ð ,,slepptu mér“, svo Rick og Abby sneru sér við. Svo tók hún í handlegginn hennar Revu, lagði hann á öxlina eða brjóstið á sér og henti sér niður stigann. Reva gerði ekki neitt, hún spurði bara ,,hvað ertu að gera, Annie”?! og þær einar vita hvað gerðist, svo allir halda öruggelga að Reva hafi hent henni niður, það var nú tilgangurinn held ég.

Vá, get ekki beðið þar til á morgun kl.16:35!!