Vá hvað Brooke fer í mínar fínustu taugar!! Hún er bara svo óþolandi! OG hvernig í óskupunum fer hún að því að ná öllum sviktu og fyrrverandi mönnum sínum til að halda með sér og standa með sér…. ég skil það ekki!! Ridge á bara að byrja með Taylor og búið mál! Þau höfðu eitthvað almennilegt going.. þótt ég sé reyndar búin að láta Ridge fara í mínar fínustu taugar uppá undanfarið… þá er Taylor svo góð fyrir hann og MIKLU betri heldur en Brooke!! Brooke hefur ekkert nema líkamann og einhvað sexual og ljóskulegt… hún er bara bimbó sem passar frekar sem hjákona heldur en eiginkona… enda treystir hún bara á það að ná Ridge með sér alveg sama hvað er.. með því að fara í sexy undirföt og hvísla einhverju í eyrað hans! Óþolandi!! ..En ég veit að engin er alslæmur og hún hefur sína kosti… en gallarnir eru bara miklu miklu áberandi!

Æj varð bara að tjá mig….