Okei, rúv sendi mér og vinkonu minni svar við bréfinu sem að við sendum í gær og í því stóð að ástæðan fyrir því að Guiding var ekki sýnt væri út af því að það eru samningarviðræður um “nýju” þættina og þeir eru ekki komnir til landsins! Mér brá solldið við að lesa þetta af því að ég hélt að rúv ætti þetta allt á lager.. 10 ára gamlir þættir!! En þess vegna voru þessar stiklur sýndar í staðinn.. eitt huggandi við þetta allt saman er samt að Guiding var ekki enn og aftur ítt í burtu fyrir einhverja þætti um steinasöfn! :)