Þetta var það allra síðasta sem ég bjóst við því að sjá í Leiðarljósi í dag.

Jenna, bara búin að eignast lítinn strák sem hún skírði Henry. (ég vissi reyndar allann tímann að hún mundi eignast strák sem fengi nafnið Henry Cooper Bradshaw) Jæja, hún fékk loksins barnið sem hún vildi.

Og havð er með Nick? Segjandi það að jólin hefðu ekki verið ánægjuleg vegna þess að Alan “dirfðist” að eyða jóladeginum sjálfum með þeim sem honum þykir vænt um. Þetta er n ú (eða verður innan skamms) húsið hans. Ef einher hefði látið svona við mig, í mínu húsi og það á jólunum, þá hefði ég hent honum út og sagt honum að faar í rassgat og éta skít.

Ekki var hann svo mikið skárri með þessa sögu, um það hvernig hann og Mindy Sue Lewis kynnust. En hjartnæm saga. Ég sé þetta fyrir mér:

“Já, þetta er sem sagt konan mín, hún átti í hot and heavy ástasambandi við eiginmann mömmu minnar, sem ég hef gjörsamlega afneitað, vegna þess að hún vildi ekki að ég giftist konunni sem nýtti sér hjónabandsvandræði hennar og reið manninum hennar.”