Vá maður! Þetta var ekkert smá dramatískur þáttur! Held þetta hafi nú bara verið með betri grannaþáttum í lengri tíma:-) og nú situr maður spenntur og bíður þess að sjá hvort að allt takist ekki með afbrigðum vel í aðgerðinni, eins og nágranna er von og vísa … annars hefur nú fólk dáið á sjúkrahúsum … og oftast fólk sem maður vill frekar sjá lifa svo maður veit aldrei! En ég ætla bara að vona að ef að allt gengur upp að Svetlanka (illa tíkin!) segi þá sannleikann um Luka og að hann dvelji hjá okkur lengur og verði einn af fjölskyldunni … aumingja systkinin:-)