Það verður semsé gerð 3. sería. Þættirnir eru það vinsælir að það hafa verið pantaðir 26 þættir hvorki meira né minna. Fyrsta serían var 22 þættir og önnur serían var 23 þættir, þar sem þættir 22-23 voru sýndir saman sem tveggja klukkustunda lokaþáttur núna í gær, þannig að um er að ræða 4 “bónus” þætti. Gaman gaman!

Stöðin (The WB) hefur flutt sýningar þáttana yfir á miðvikudaga kl. 8/7 central time, á undan nýjum þætti sem verður tekinn til sýninga að nafni Related. Þetta er talið talsvert stökk upp á við, en sería 2 var sýnd á þriðjudögum klukkan 8/9c á eftir Gilmore Girls.

Vona að þetta komi að einhverju gagni.
- MariaKr.