Einmitt, því þeir hafa greinilega tekið rétta ákvörðun, og ákveðið að byrja að sýna næstu seríu af One Tree Hill mjög stuttu eftir að þeir kláruðu seríu eitt..Þetta er bara jákvætt, því að í USA eru þeir að fara að sýna þátt 12 á morgun, sem þýðir að við verðum búin hvað, ca. mánuði á eftir þeim. :)
Ég ætla mér það líka að vera fyrsta manneskjan að senda inn samantektargreinar um alla þættina, sem verður ekkert mál..Þannig að ef einhver missir af þarf hann/hún ekki að hafa áhyggjur.
P.S. Ég hoppaði næstum hæð mína þegar ég sá kynninguna, þessi samantekt rokkaði, og mest af öllu rokkaði þetta LAG!
- MariaKr.