Ég á eftir að sakna þess að setjast niður á mánudögum og sjá hann Chad minn. En ég er með svo mikið OTH efni í tölvunni núna, að ég líð ekki skort. Svo tekur vonandi eitthvað jafn gott við, Dead like me, heyrði góða hluti af þessum þáttum, kynningin sem var eftir One Tree Hill var skemmtileg. Svo er það bara að halda þessum þræði gangandi með umræðum um leikarana, eitt stykki samantektargrein úr seríu eitt sem ég ætla að gera um helgina.

Hvernig fannst fólki svo þátturinn? Ég sver það, á lokasekúndum leiksins var ég komin á stólbarminn, því maður gat alls ekki vitað hvort þeir ynnu þetta eða ekki fyrirfram, sem var bara gaman.
- MariaKr.