Nú veit fólk að sería eitt af OTH er að renna sitt skeið á Íslandi. Fyrir þá sem gera ekki séð þættina, af netinu eða annarsstaaðr, eða vita ekki hvar þeir eiga að leita að því (ég t.d.) þá er þetta ansi löng bið…

Núna í febrúar á að byrja að sýna OC aftur. Ég fatta alveg hvað Skjár einn er að hugsa, hafa bara eina svona “unglingasápu” í gangi í einu. En bilið sem skapast á milli, núna nóv til feb, þá byrjar OC, svo verður öruglega meira hlé, og svo loksins kemur 2. sería af OTH. Það er OF langur tími fyrir mig að bíða, sem og öruglega fleiri.

Datt í hug að gera undirskriftarlista, yfir þá sem vilja reyna að fá Skjá Einn til að sýna OTH season 2 nánast strax eftir að OC season 2 klárast. Hver styður þetta?
- MariaKr.