Það var nú ekki neitt mjög mikið þannig séð að gerast í þættinum í dag. Hann byrjaði á því að þau voru að Kyssast Joel & Flick og voru bara yfir sig ánægð með það. Joe var enn fastur í skóareldinum og Tina (farþeginn hans)var bara að fara að eiga barnið. Hann hringdi í Karl og sagði honum fá þessu og Karl sagði að þau þurftu að koma sér í skjóla og taka á móri barninu. Eða allavega byrja og ef skökkviliðið mundi koma í milli tíðinni þá þundu þeir taka við. En Joe tók á móti ekkert smá ánægður með það. Karl hjálpaði honum í gegnum síman en annað slagið þá slitnaði sambandið hjá þeim og þá leyst Joe ekki á blikuna. Það fæddist lítill strákur. Þegar hann var fæddur þá var bíllinn orðin rafmangnslaus eða eitthvað þannig að Joe gat ekki tala meira við Karl. Hann forðaði sér inn í bílinn með Tinu og barnið og sagði að þau væru frekar óhult þar og að þau ættu að vera inn í bílnum á meðan eldurinn færi yfir þau. En svo var ekki því slökkviliðið kom í tæka tíð og bjargaði þeim :)
Joel er að fara yfir um held ég bara. Lance & voru að gera þvílíkt grín af honum í sambandi við Flick en það veit engin að þau eru búin að kyssast. Joel er bara í brjálaðu skapi og vill ekkert tala um þetta. Það er liggur við búið að gera húsið hjá þeim fokhelt eftir partýið. Það er gar á veggjum, teppið er brennt eftir að eitthver var með miðilsfund eða eitthvað álíka. Eitthver reif niður plaggat hjá Toadie og hann var sko ekki ánægðu með það fyrir utan að að hann var frekar sár að það var ekki látið hann vita af þessu partýi. Þátturinn endaði á því að Flick var að koma að tala við Joel og þau standa fyrir utan og hún spyr hvernig hann hafi það. Hann segirst vera alveg í skýunum og hún spyr hann hvort þetta sé byrjun á sambandi hjá þeim eða hvað. Þannig að það kemur í ljós í næsta þætti hvað Joel svarar.

kveðja
palinas
<img src="