Ég sá ekki fyrstu 10 mínúturnar af þættinum þannig það vantar eitthvað inn í ;)

Olimpia og José börðust upp á líf eða dauða. Olimpia var fyrst með byssu en hún tóm, svo kom José með hníf og þau fóru að slást. Þetta endaði með að hún náði hnífinum og stakk hann.

Það hringdi einhver í Chiqui, og sagðist vera Bella. Chiqui kom brjáluð á hótelið og vildi fá að tala við hana, en það vildi enginn hleypa henni upp til Bellu. Allt í einu fékk hún sting í magann og gat ekki staðið upp. Tza Tza hringdi á lækni og þetta var einhver blæðing í magann, ef hún myndi hreyfa sig mikið væri hætta á að Chiqui myndi missa fóstrið. Hún lá í rúminu hans Franklins og hann vildi sjá um hana og vildi alls ekki láta Orestes vita.

Pandora fór í Hugo dulagervið og fór svo með einhverjum vini sínum á kránna. Þau voru að tala saman og fóru svo næstum að kyssast, svo kom Jordi inn alveg brjálaður og ætlaði að berja kallinn. Bonignoma stoppaði þá og karlinn sagði við Jordi að hann ætti Pandoru ekki skilið, Jordi sagði honum að láta hana í friði og fór út. Pandora spurði svo karlinn hvað Jordi hafði sagt en karlinn laug, sagði að hann ætlaði ekki að breytast og ætlaði að halda áfram að halda fram hjá (sem hann gerði ekki) Bonignoma var ekki að fatta afhverju þeir voru að rífast um mann :') :)

Orstes leitaði af Valentinu út um allt en Valentina var að forðast hann því annars myndi fattast allt. En loksins náði Orestes tal á henni og þau kysstust :D

Ég náði ekki meiru og mun bíða spennt eftir næsta þætti sem verður ekki fyrr en næsta mánudag ! :(