Nú þegar Roger liggur í blóði sínu inni í gróðurhúsinu getur maður ekki annað en velt því fyrir sér hver skaut hann. Síðast þegar skotið var á Roger þá var það Alan Spaulding sem tók í gikkinn (því miður fyrir hann, og okkur hin, lenti kúlan ekki í Roger heldur Phillip) og nú er hann að afplána dóminn sinn fyrir það brot svo að ekki var það hann:) En hver var það þá?

Það eru óneitanlega nokkurir sem eru líklegri en aðrir og það eru:
1)Billy Lewis
2)Nick McHenry Spaulding
3)Alexandra Spaulding
4)Jenna Bradshaw Thorpe

Billy hafði ástæðuna það er alveg pottþétt en spurning hvort hann hafði byssu…hann hefur alveg örugglega verið boðinn og búinn að skjóta hann en held honum hafi vantað aðgang að morðvopninu þó það sé aldrei að vita hvað Texasbúar geyma í hanskahólfinu:)

Nick, eins og Billy, hefur haft viljann til verksins…hvað er betra en að verja heiður Mindyar með því að drepa Roger? Fátt. Það er víst…en held nú að það séu minni líkur á því að hann hafi komið höndum yfir byssu en Billy, enda spilar hann sig líka alltaf svo yfir svona hluti hafna.

Alex er óneitanlega mjög líklegur kandídat EN held að það sé fyrir neðan hennar virðingu að skjóta og drepa (reyna að drepa?) andstæðinga sína…hún vill sjá þá þjást og besta leiðin til að sjá Roger þjást er að sjá hann missa allt og það mun gerast á öðrum vígstöðvum en í byssubardaga í gróðurhúsi:)

Jenna hefur mikils að hefna og til mikils að vinna ef Roger deyr, svo ekki sé minnst á að hún sást ráfandi um með byssu í hendi…það væri hins vegar of augljóst að láta hana vera þann sem var á bak við tilræðið. En því er ekki að neita hún hafði bæði ástæðu og tækifæri.

Það eru svo auðvitað fleiri sem hefðu verið meira en minna til í að sjá Roger blæða: Buzz, en ég er MJÖG efins, Dylan, en hann er bara of WEAK til að gera svona lagað, Vanessa, hún beinir alltaf reiði sinni að RÖNGUM aðila svo að það útilokar hana frá því að leggja til atlögu við Roger, Mindy, sú kaldrifjaða bitch væri líkleg því guð veit að hún er ekki eins saklaus og billy og vanessa vilja meina EN hef samt enga trú á að hún hafi gert þetta enda held ég að taugar hennar til Roger séu ekki alveg slitnar enn…

Svo líklegasti kandídatinn er, þegar öllu er á botninn hvolft: BILLY LEWIS … but who can blame him? hann var jú að gera Springfield greiða:) auk þess að dóttir með feril eins og mindy setur mikla streitu á veslings Billy og ekki bætir eiginkonuómyndin úr skák!

En hvað haldið þið? Hver skaut Roger Thorpe?