Nágrannar :) Jæja aðdáendur nágranna. Hvar eruð þið?
Nú jæja, ég er víst orðin vön að bjarga okkur frá því að þetta áhugamál falli alveg undir skóm leiðarljósa (ekkert slæmt).

Ég ætla bara að tala um það sem er búið að gerast nýlega.

Lori lenti í slysi í gær. Hún og Taj voru að leika sér hjá sundlauginni, Lori var fyrst að reyna koma Taj í gott skap eftir að Nína hætti með honum. Hún lenti harkalega á bakkanum og fór svo ofan í laugina og Taj stökk á eftir henni. Hún var flutt á sjúkrahúsið og liggur rúmföst þar. Jack hætti alveg við að hætta með henni, auðvitað, og sagði Nínu það. Mér sýndist hún ekkert vera neitt ofboðslega ánægð með það…

Summer og Boyd eru að fasast við einhverja stelpu. Stelpan eyðileggur vinnuna fyrir Summer. Mjög mikið mál í kringum það og Boyd lét Bob “gera sitt” á stéttina heima hjá stelpunni, ég held að það hafi ekkert verið neitt hrikalega gáfulegt neitt…
Gangi þeim vel með það.

Stu er að reyna fá Libby til að vera með sér, en hún getur það ekki út af Drew og fleiri ástæðum. Þau hafa reyndar ekkert verið í þáttunum lengi, en nógu stutt síðan að það er enginn búin að nefna þetta hérna.

Connor flutti út úr scully-húsinu eftir að hafa stungið af með Shell þegar innflytjandaliðið kom og vildi tala við hann, Connor fékk samt að vera í landinu, en varð að hætta að vinna hjá Joe og þau ráku hann út. Connor er núna mest alltaf með Lou og þeir eru alltaf eitthvað að bralla.
Shell sagði bara hreint og beint við hann að hún vildi fá svör, annað hvort hætti hann með henni eða hann gæti verið með henni án þess að fá leyfi hjá foreldrum hennar.
Gangi þeim vel.

Lyn og Joe voru að mála barnaherbergið í þættinum í dag. Þau eru mikið að spá í að Valda sé komin aftur (ójá she's back!!). Valda greyið er eitthvað að hrella Karl og Susan, sem hata hana (ekki það að ég skilji þau ekki…)

Karl missti leyfið nú á dögum, og má hann ekki keyra lengur. Hann er í einhverjari hreystis áætlun sem ég fatta ekki alveg og er hættur að drekka. Hehe og rottan var nú vandamál á sínum tíma.

Harold er búin að sýna leikritið og það gekk nú bara svona… ahhh ágætlega. Hann hélt að gagngrínandinn hefði verið ánægður með leikritið út af Connor og Lou sögðu það. En svo sá hann gagngrínina og sá að hún var bara alls ekki neitt góð.

Darcy er enn að reyna fá Dee til að vera með sér, og hann borgaði einhverjari konu til að tala við Toadie (kann ekki að skrifa það) og Dee varð alveg miður sín. Ég er ekki að þola Darcy í augnablikinu, og ég vil koma einni spurningu á framfærið; Er Darcy hommi eða? Lýtur allavega hryllilega mikið út fyrir það, nú jæja! Sleppum því.

Steph er með barþjóni (sem ég man ekki hvað heitir) og Max er alveg að drepast úr öfundsýki. Þau fóru saman í ferðalag um landið, ég held að það muni semsagt ekkert koma meir um þau á næstunni.

Jæja ég held að þetta sé nó í bili, en endilega áðdáendur Nágranna að taka sig til og skrifa góða grein um þessa afbrags þætti.
Ég hef lítið sem ekki neitt verið á huga síðustu vikur og þegar ég kom aftur, hélt ég að ég myndi fá alveg tonn af frábærum greinum og korkum um þættina, en ég fékk ekki neitt :(
Við verðum að laga þetta :)

Að lokum vil ég benda fólki á að það væri gaman að fá kannanir sem maður getur í raun svarað. Eins og könnunin sem er núna, ég get ekki svaraði henni. Ég veit ekki einu sinni fyrir hvaða sápu þessi könnun á að vera! Ég held að allir ættu að taka þetta til sín og segja í könnunum t.d. “ég horfi ekki á þessa sápu”. Það væri það minnsta sem hægt væri að gera.
Og munið, þetta er allt fyrir okkur sápuóperu aðdáendurnar.