Þátturinn byrjar að Ed og Michelle sitja og tala saman í eldhúsinu og ræða um matargerð og þá kemur Bridget inn og það verða fagnaðarfundir. Bridget brotnar niður en heldur þessu leyndu með barnið enn sem er, hún fer svo aftur.

Buzz situr og er að bíða eftir borði, Nick og Eve koma og fá sæti. Buzz daðrar við Mindy en Nick stoppar hana af, þau fara svo út á veröndina og tala enn betur saman, Eve stendur álengdar og horfi á þetta og rýkur heim og er að leita að einhverju og finnur mynd.
Nick og myndi eiga rabbstund saman og Nick spyr hvað hún vill og hún telur það upp.

Jenna og Roger brjótast inn í skrifstofu A.M og eru að leita að gögnum, Roger finnur nafn Betty og ætlar til Washington. Þau sitja svo að snæðingi á veitingastaðnum.
Buzz sést tala við Jennu og Roger kemur svo og Buzz fer.

Hart Jessup sonur Rogers snýr aftur. (Sést bara hann og nafnspjaldið á töskunni)

Elanie segir að A.M að þetta sé búið og að hann á ekki barnið og -THE TRUTH HURTS- en A.M þolir það ekki að heyra þetta. Þau rífast og A.M nefnir að hún hafði verið á pillunni en það reyndist lyfleysa svo Frank á barnið. A.M er bæði reiður og sár. Hann brýtur glas i hend sér þegar Elanie og Frank labba í burtu og þegar hann er að þurrka sárið þá dettur skjalið úr vasanum.


Mér fannst það gott á A.M að fá þetta framan í sig. Að Hart sé komin aftur, og verður fróðlegt að sjá hvernig gengur með réttarhöldin þegar pappírinn sé týndur. Og hvða gerist milli Bridget og Nadine.
Tel að þetta með barnið og Bridget þá á þetta eftir að verða stórt BÚM.

Mundi langa að fá ykkar skoðanir.