Já þá eru úrslitin ráðin í þessari blessuðu bannerkeppni. Það var alveg með ólíkindum hvað jafnt var á með efstu tveim bannerunum en það fór á lokum þannig að intenz sigraði með þessum banner: http://www.hugi.is/romantik/images.php?page=view&contentId=6106442

Ég óska honum til hamingju og ég vona að þeir sem kusu hann ekki geti samt sem áður verið sátt.


Ath. þegar þetta var skrifað þá sigrar intenz með 52% atkvæða en úrslitin í könnuninni sjálfri gæti breyst þar sem könnunin stendur ennþá. Hins vegar hefur það ekki áhrif á úrslitin þar sem úrslitin áttu að vera kunn í morgun, ég bara gat ekki sett þetta inn fyrr en núna.

Bannerinn verður svo settur upp eins fljótt og auðið er, og ég vil bara óska intenz til hamingju með sigurinn, og hin sem tóku þátt eiga einnig hrós skilið fyrir sína þátttöku :)