Alltaf þrái ég þig heitt
þó líði ár.
Í heiminum getur ei neitt
þerrað mín tár.

Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér.
Þó gleymir þú í heimsins glaum öllu um mig
ég elska þig.

Í svefni sem vöku
sé ég þig.
Borsandi augu þín
yfirgefa ei mig.

Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér.
Þó gleymir þú í heimsins glaum öllu um mig
ég elska þig.

Svo flykkjast árin að
og allt er breytt.
Í minninguni brenna þó
augu þín heitt.

Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér.
Þó gleymir þú í heimsins glaum öllu um mig
ég elska þig.