vá ég veerð að segja ykkur, kæru hugarar, frá þessum áramótum :)

ég og kærastinn minn vorum að keyra í kringum miðnætti í gær skoða flugeldana og hafa það rómantíkst.. svo varð hann alveg brjál;) bað mig um að stoppa bílinn einhverstaðar svo við gætum farið út og horft á flugelda brjálæðið … við leituðum af góðum stað í smá stund en komumst loksins út, þar sem var gott útsýni og HELLINGUR af öðru fólki reyndar… við horfðum á flugeldana og vorum rómó, svo fer hann ándjóks niður eins og í bíómyndunum akkurat á miðnætti og tekur hring úr vasanum… vá, ég bráðna við að hugsa um þetta :$ :D trúlofun á áramótunum :) <3 bestu áramót í heimi, ég elska hann mest í heimi og ég er svo happy :D

veit þetta er voðalega pointless þráður, en ég bara VARÐ að segja þetta :D:D:D

gerði ykkar kæró einhvað rómó? :) endilega deilið með mér ;)

þeigiði frekar en að skíta yfir mig :) góð komment vel þegin samt :)

Gleðilegt nýtt ár :)
Nenniru að horfá mig þegar ég tala við þig =C