Sælt veri fólkið.

ég er í smá vandræðum og vantar svona smá hjálp, veit ekki afhverju ég segji þetta hér but here it goes.

ok. semsagt. ég byrjaði með stelpu 1. des síðastliðin, stelpu sem ég hef verið hrifin af mjög lengi. ok allt gengur vel hjá okkur, ég eyði meiri hluta af frítíma mínum hjá henni og er hjá henni allar nætur. jólin koma og ekkert virðist að…

síðan gerist það núna milli jóla og nýárs á hún og fyrrverandi hennar sættast, hafa ekki talast við síðan þau hættu saman. ok ég get svosem allveg sætt sig við það þótt hann sé hálfviti ^^ en eiginlega um leið og það gerist þá er eins og hún missi allan áhuga á því að vera með mér, voðalega áhugalaus þegar hún talar við mig en er alltaf voðalega glöð ef fyrrverandi hringir. hún segir að þau séu bara vinir, en ég náttlega sem kærasti hef grunsemdir. 2 dögum síðar erum við komin í pásu…… hún lofar að þetta tengist fyrrverandi ekki neitt og þau séu bara vinir, hún þurfi bara að hugsa, segir að henni sé búið að líða svona síðan fyrir jól og hún sé búin að tala við alla í fjölskyldunni um þetta og alles.
já ok, ég get voðalega lítið gert en samþykkt þessa pásu.

ég fer á djammið kvöld sama dags og við förum í pásu, nýtti mér það að pabbi hennar gat skutlað mér heim og spurði hann létt útí þetta án þess að vera grenslast eitthvað geðveikt og láta líta út fyrir að þetta sé eitthvað heavy vesen. hún hefur ekkert talað við hann….þrátt fyrir að hafa sagt annað.

ég er allveg gjörsamlega ráðþrota í þessu, og biðin er að drepa mig, ég er ekki bara búin að vera hrifin af þessari stelpu síðasta árið heldur bókstaflega elska ég hana, ég mundi gera hvað sem er fyrir hana.

ég hef ekki sagt henni nákvæmlega hverjar tilfinningar mínar eru til hennar, þ.e.a.s. að ég elski hana en … en ég bara veit ekki hvað ég á að gera, mér er búið að líða ömurlega síðustu daga, þetta gjörsamlega eyðilagði áramótin hjá mér og fyrsta dag nýs árs (þar sem við ættum mánaðarafmæli) og er gjörsamlega að missa mig. er búinn að hitta hana nokkrum sinnum og þetta virðist ekert á hana að fá….

hvað get ég gert og getur einhver komið með skýringu afhverju hún gæti látið svona…. :(:(