Þetta er einfaldega sutt lýsing á ástarlífi mínu og vonast eftir að fá góð svör og kannski smá hjálp . Og eins og sjálfsagt er ég er lélegur í stafsetningu og engin skítaköst takk fyrir

Ég breyti nöfnum og smátriðum í þessu til að vernda einkalíf mitt þótt ég sé að senda allt um það á huga

Semsagt fyrir allmörgum vikum kynntist ég stelpu sem var i örðum gagnfræðiskóla en ég og var þá geðveikt mikið að reyna við mig en við vorum bara svo kallaðir msn buddies. Hvert skipti sem hún vildi hitta mig forðaðist ég hana vegna þess að ég hélt að ég myndi ekki vera eins og hún átti von á, þá var þetta það næsta því sem ég hef komist með að komast á sjéns. Köllum þessa stelpu bara Helgu, semsagt fyrir nokkrum mánuðum þá ákvað ég að kýla á það og hitta hana en það var gaman þangað til það endaði þannig að daginn á eftir vildi hún ekki tala við mig. Semsagt ég reyndi að hafa samband við Helgu en hún lét eins og ég væri ekki til og þetta var þannig í all marga vikur og eftir þann tíma kynntist ég vinkonu hennar sem ég nefni Eva og var svona nokkurnvegin byrjaður með henni en hún var 1 ári yngri en ég en núna er samband okkar virkilega óljóst þar sem að ég veit ekkert hvað það er sem hún vil. En þá byrjar Helga aftur að tala við mig og þá virkilega virkilega mikið en Helgia seigjir að ég sé geðveikt skemmtilegur og þannig allt fínt en þegar ég er með henni forðast hún alla sem hún þekkir vegna þess að hún vill ekki láta sjást með mér en hún hringir samt í mig næstum daglega. Þannig að ég veit ekket hvernig þessi stelpa hugsar um mig. En svo er önnur stelpa sem er lík ári yngri en ég en í sama skóla ekki eins og Eva og Helga en samt góð vinkona þeirra. Hún sýnir mér frekar mikin áhuga en líklegast bara vegna þess að ég er ári eldri en hún. Og meira og minna allt þetta var að gerast í dag.

Hvað á ég að gera?! Fyrst er það engin stelpa svo allt of margar og ég veit ekkert hvernig þær hugsa eða hvort ég eigi nokkuð sjéns í einhverja? Helga er allt of mikil gelgja Eva er með einhverjar ranghugmyndir og mig langar í Helgu en ég veit ekkert hvað henni langar :( ég er ekki að fara að spyrja henni hvað henni finnst vegna þess að ég vil ekki eyðilegja vinskapin okkar.

Þannig að getur einhver hjálpað mér eða komið með einhverjar hugmyndir um hvað gera skal? (: Og takk fyrir að nenna að lesa þetta og munið þetta er fyrsta skiprið sem ég sendi einhvað inn so be nice.
Lol, þú last þetta.