Ok þanni er það.. að ég þekki stelpu. Ég er búinn að þekkja hana frekar lengi og við höfum alltaf verið góðir vinir og þannig en ég hef alltaf verið spá hrifin af henni:/ ég er ekki alveg viss með hana.

Ég er 16 ára núna og núna held ég alvarlega að ég sé orðinn ástfanginn af henni, ég bara get ekki hætt að hugsa um hana, ég bara get það ekki, ég bara elska hana, ég verð alltaf mjög afbrýðissamur þegar ég sé að hún sé að sms-ast bara við einhvern gaur eða eitthvað þannig, og mér finnst að ég eigi bara ekki neinn séns í hana og að ég sé líka kominn of langt inní friend zone-ið..

Ég hef líka bara aldrei verið í neinu sambandi við neina stelpu og veit ekkert hvernig á að fara að þessu.

Og ég bið ykkur innilega að hjálpa mér og gefa mér ráð því ég er að verða klikkaður, ég get ekki hætt að hugsa um hana,

Þurfti að koma þessu frá mér. Takk

Bætt við 18. apríl 2007 - 01:15
Fyrirgefiði ritvillur, spá hrifin á að vera smá hrifinn.
jeee