Jæja, fyrsta greinin mín eða bréf eða hvað sem þettta kallast og þetta er ekkert smá mikið vandamál að mínu mati.

Þetta vandamál tengist stelpu sem ég er búinn að þekkja í nokkur ár og við erum geðveikt góðir vinir. Ég hef eiginlega alltaf verið hrifinn af henni og hún mér en ég þori ekki að gera neitt í því vegna vináttu okkar.
En svo um daginn var ég að “Passa” hana..hún var sko full og ég var bara að sjá til þess að þegar foreldrar hennar mundu koma heim þá tækju þau ekki eftir því.
En já þegar ég var hjá henni þá kyssti hún mig en ég bara eiginlega fraus og hún spurði afhverju ég vildi ekki kyssa hana og ég sagði bara útaf því að við erum svo góðir vinir og þú ert full.
Mig hefur alltaf langað til að kyssa hana en hef aldrei þorað því ég veit ekki hvort ég sé lélegur eða ekki :S
Núna veit ég ekkert hvað ég á að gera…

Getur einhver komið með einhverja góða tillögu til að laga þetta?
"Never argue with an