Það er mál með vexti að ég þekki einn strák, hann er voðalega næs og allt það og við hittumst um daginn….
Samt langar mig bara að hafa hann sem vin en hann hættir ekki að reyna hitta mig aftur….
Alltaf að spurja og ég þarf alltaf að afsaka mig…:S
Mig einfaldlega langar ekkert í meira með honum en ég held að hann geri sér ekki grein fyrir því og hann vill meira….:S
Ætti ég að vera bitch og segja honum bara hreint út eða bara reyna koma mér undan þangað til hann áttar sig?
Veit bara ekkert hvað ég á að gera :S