Halló

þannig er mál með vexti að það er þessi gullfallega stúlka með mér í skóla, ekki með mér í bekk samt, og ég væri til í að kynnast henni, en hér er vandamál, ég get ekki talað við stúlkur í svona löguðu, svo að ég ætla að leita hjálpar hér…

Ég hef ekki hugmynd hvað ég á að segja

Ég reyndi eitthvað áðan, en eina sem gerðist var þetta: hún sat eitthvað í frímínútum, ein eða eitthvað, og ég ætlaði að spurja hana að einhverju, hvað klukkan væri eða eitthvað, en ég þorði ekki, en svo hélt ég að ég þorði, svo að ég fór upp að henni og ætlaði að spurja, svo guggnaði ég og labbaði rösklega í burtu =/

S.s.
Ég; “ehh, hey….” *fer*

Hjálp væri indæl

Kv. TheMinister =)