Þetta á kannski ekki heima hér á rómantík en mér finnst þetta ljóð bara svo flott.

Fyrir Þig

Ég ber hjarta þitt.
Ég ber það í hjarta mér
Ég sleppi því aldrei,
hvert sem ég fer,ferð þú, vina
Og hvað sem gjört er bara
mín gjörð, elskan mín.
Ég óttast engin örlög
því þú ert mín örlög, mín kæra.
Ég þrái enga veröld því,
mín fagra, þú ert veröld mín.

Þetta er leyndarmálið dýpsta sem enginn veit.
Þetta er rótin á rótinni
og hnapurinn á blómahnappnum.
Og himininn á himnum
Yfir tré sem kallast líf.
Vex hærra en sálin getur vonað.
Eða hugurinn hulið.
Og þetta er undrið
sem aðskilur stjörnurnar.

Ég ber hjarta þitt.
Ég ber það í hjarta mér.