Já svona getur þetta verið. Maður hefur verið að leita og leita undanfarið af “ástinni”.

- Ég hitti einn alveg æðislegan um daginn. Passaði inní myndina hjá mér, og svona vel. Váá! Soldið eldri en ég. Ekki barnslaus, það er ekki verra. Ég meina, þetta smellpassaði! Þetta er eins og að hjartað mitt sé púsluspil og þessi maður var týnda púslið.

Við gátum talað um allt! Sammála öllu, gaman að knúsast í honum og svona. :) Ohh þetta var svo æðislegt kvöld!

En svo virkar soldið eftirá að hann vilji ekki tala við mig. Ég veit hvenær fólk blockar mann og allt það. En það er bara soldið sárt. Og í fyrstu gerði ég þann óleik að segjast vera eldri en ég er.. :S Í 19 staðinn fyrir 18. Það er eins og að það sé verið að rífa úr mér hjartað. En ein óheppnin á ferð. En jæja, það eru nóg af fiskum í sjónum eins og maður segir.

:'( Ég gæti grátið úr mér augun af samviskubit. :'(