Í sumar þá hitti ég stelpu í sumarvinnunni minni sem ég varð strax hrifinn af. Þar sem ég er stór og þybbin náungi sem á ekki mestan séns í stúlku eins og var þarna á ferð þá gerði ég eins og venjulega, fel það og bíð eftir að það fari. Það gekk ekki og fyrr en ég vissi af var ég búinn að gjör breyta mér úr tölvu nördi í “eðlilega” manneskju og líkar við það. Núna er ég búinn að þekkja þessa stelpu í 4 að verða 5 mánuði og verð alltaf bara meira og meira hrifinn af henni. Ég tala við hana á hverjum degi(msn ekki face to face) og er það um það bil það skemmtilegasta sem ég geri yfir daginn. Ég gæti lifað við þetta allt nema núna síðustu helgi þá sá ég hana með strák sem er víst þekktur fyrir að vera með dóp og að sofa hjá stelpum og losa sig síðan við þær. Eftir þetta er ég drullu hræddur um hana og er farinn að átta mig á því hvað ég er fáránlega hrifinn af henni.
Ég spyr ætti ég að segja henni þetta þótt að, að mestum líkindum verði mér hafnað og hún spyr hvort við viljum ekki bara vera vinir, eða hvort ég eigi að geima þetta lengur.
Stelpur geti þið verið vinir eftir að strákur segir eitthvað svona?