Komið þið sælir hugarar..ég var svona að velta fyrir mér einu með sambönd..hvernig er best að taka á rifrildum? ég og kærastinn minn erum á einhverju “tímabili” núna og erum mikið að rífast og pirrast út í hvort annað og erum bæði þrjósk og hlustum lítið á hvað hinn aðilinn hefur að segja :( við vorum næstum hætt saman út af þessu um daginn. Hvað á maður að gera til þess að hætta að særa hvort annað svona og er hægt að bjarga svona samböndum? Ég vil gjarnan fá svör frá þeim sem hafa lent í svipuðu og please ekki vera með leiðindi!!