Mig langar til þess að deila með ykkur bréfi sem ég fékk í tölvupósti. Þetta er vinabréf í tilefni af alþjóðlegri vinaviku. Sagan sem sögð er í bréfinu vakti mig til umhugsunar um þau orð sem ég hef látið falla í reiði minni. Maður segir margt þegar maður er reiður og sár, en gerir sér oft ekki grein fyrir því hvaða áhrif orðin hafa. Það er gott að geta fyrirgefið, en fyrirgefningin tekur samt ekki í burtu orðin sem hafa verið sögð. Spáum aðeins í það!!

Vinabréf
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur.
Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn
sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í
bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.
Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi
negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var
auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í
girðinguna.

Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn
hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og
faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag
sem hann hefði stjórn á skapi sínu.

Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir
naglarnir væru horfnir. Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að
grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði ,en sjáðu öll götin á
grindverkinu.
Það verður aldrei aftur eins og það var áður.
Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og
naglarnir.
Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur sárinu,en það er
alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar,örin eru þarna samt áfram. Ör
sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.

Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig,skiptast á
skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér.

Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá og
sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka
og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Nú hefur þú safnað um þig
vinahring.
Gleðilega vinaviku!

Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Sendu nú bréfið
til vina eða fjölskyldu. Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í
grindverkinu þínu.