Komið sæl og blessuð aftur.

Ég hef verið að skoða greinar hérna á huga sem og korkana. Það virðist vera sem að það sé mikið um þessa svo kölluðu “Nice Guys” og ég finn mikið til með raunum þeirra því ég er einn af þeim. Því hef ég ákveðið að leggja mitt af mörkum og stofna irc rás sem eiginlegt athvarf okkar góðu gæja. :) Og þangað geta þeir komið og sagt frá raunasögum sínum. Og þangað geta líka stúlkurnar sem vilja kynnast góðum gæjum komið og séð hverjir eru þarna.

Reglurnar verða voða einfaldar, þær eru eiginlegar standard irc reglur.
1. Ekki nota CAPS. Það er alveg óþolandi. Ef þið viljið ná sambandi við fólkið talið við þau í private message.
2. Ekki flooda. Það getur gert mann brjálaðann að sjá sömu setninguna aftur og aftur og aftur og aftur. Þetta er alveg nóg til að gera venjulega manneskju alveg trítilóða.
3. Ekki vera að nöldra um op. Ég mun bæta við opum þegar ég hef séð hverjir standa undir því þ.e.a.s. hvort menn eigi það skilið og hvort þeir geta staðið undir ábyrgðinni.
4. Þessi regla er eiginlega svo algeng að mér finnst eiginlega óþarfi að taka hana fram, EN það virðist sem það sé mikið af fólki sem bara fer ekki eftir henni. Kurteisi á að vera númer 1 2 og 3 hjá öllum. Ef fólk er með einhvern kjaft og leiðindi verður því hent út og bannað.

Núna er loksins komið athvarf fyrir okkur góðu gæjana. Því lýsi ég hér með #nga.is opið. *klapp* *klapp* *flaut* *fagnaðarlæti*

KV.
Bandito