ég hitti stelpu sem ég er búin að vera að SMS við og spjalla við, hún kom til mín á laugadagskvöldið og gisti hjá mér.
ég vildi ekki fara útí kynlíf strax með henni frekar fá færi á að kynnast henni aðeins, og ég er orðin frekar spennt fyrir henni.

hún er mjög, mjög feimin og ég er ekki neitt sérlega feimin, ég er svo hrædd um að fæla hana í burtu vegna þess hvað ég er ákveðin.
hún er ekki hætt að tala við mig og það lítur út fyrir að hún vilji hitta mig og jafn vel gista aftur einhvern tímann,

svo ég hræði hana ekki þá spyr ég,
hvernig er best að fara að henni fyrst hún er svona feimin?
G