Ég ætlaði bara að láta fólk vita að nýja platan með sænsku sveitinni Pain of Salvation er komin á útvarpsstöðvarnar (í það minnsta Rás 2 og Radíó-X), þannig að ef að þið viljið heyra þetta, er um að gera að hringja og biðja um það.

Lagið Undertow er það sem farið er að heyrast…

Til gamans má geta að nýja platan, Remedy Lane, hefur hlotið vægast sagt frábæra dóma í ýmsum tímaritum um heim allan og er einnig væntanlega til Íslands, ef hún er ekki þegar komin. Endilega líta við í búðirnar (eða hringja) og spyrjast fyrir.
Resting Mind concerts