Eftirfarandi fékk ég sem félagi í Netklúbbi Flugleiða:

—————–

Kæri Netklúbbsfélagi

Val.is, tilboðsverslun Vildarklúbbs Flugleiða hefur tryggt sér verulegt magn miða á seinni tónleika Rammstein 16. júní.

Uppselt var á fyrri tónleikana á mettíma og fjölmargir þurftu frá að hverfa.

Miðasalan á seinni tónleikana hefst kl. 10.00 fimmtudaginn 7. júní.

Til þess að félagar í Netklúbbi auki líkurnar á að fá miða á Rammstein tónleikana er best að gera eftirfarandi strax eða vel í tíma áður en miðasalan hefst:

1. Skrá sig í Val.is*
2. Kaupa vöru á Val.is**

Með þessu móti kynnist þú kaupferlinu og skráir nauðsynlegar upplýsingar
um þig í gagnagrunni okkar. Þá þarft þú ekki að eyða dýrmætum tíma í að
slá þær inn þegar mínútur og jafnvel sekúndur skipta máli við kaupin á miðunum.

http://www.val.is

*Hægt er að nota sama notendanafn og lykilorð og fyrir Netklúbbinn.

**Dæmi um vöru sem gæti hentað:
Rammstein - Mutter kr. 1.990
(almennt verð kr. 2.399)
200 ferðapunktar í kaupbæti

Ps. sendu póstinn áfram á vin sem gæti haft áhuga!

Kær kveðja
Netklúbbur Flugleiða

———-

Þannig að um að gera að tryggja sér miða!
Resting Mind concerts